Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Flott framtak hjá ÍTR-Hinu Húsinu

Rosalega finnst mér flott framtak hjá Hinu Húsinu að hafa svona lýðræðis og fjármálafræðslu fyrir ungt fólk. Ég hvet unga fólkið því til að nýta sér þessa fríu þjónustu til að fræðast og hitta annað ungt fólk í sömu hugleiðingum :) 

hropid


Neyðarstjórn kvenna gefur út fyrstu Kvennastjórnartíðindin

Langar að vekja athygli á nýjum félagasamtökum sem upp hafa sprottið úr kreppuástandinu. Konur hafa tekið sig saman og myndað Neyðarstjórn kvenna sem ætlar að fjalla um málefni líðandi stundar og jafnvel koma með kvenlegan vinkil og ráð í ástandinu.

Hér er fyrsta tölublað Kvennastjórnartíðinda sem gefið er út af fjölmiðlahóp Neyðarstjórnarinnar.
http://blogg.visir.is/kvennastjornartidindi/files/2008/11/kvennastj_les.pdf

Ég hvet síðan alla til að mæta á Austurvöll í dag til að finna stemningu sameiningar Alþýðunnar.
Á Austurvelli verður einnig gamli Volvoinn minn til sýnis í nýju gervi eftir að listamaðurinn umdeildi Þórarinn Jónsson lét hendur standa fram úr ermum :)


Leynikröfur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins? Látum ekki blekkjast!

Ég vil vekja athygli ykkar á eftirfarandi pósti sem ég fékk í dag. Vakin er athygli á spillingu innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins - þeir ásælast auðlindir annarra þjóða með leyniákvæðum í gegnum hina svokölluðu "neyðaraðstoð" sem löndin eiga erfitt með að afþakka. Um þessi leyniákvæði fáum við líklegast ekkert að vita fyrr en eftir áratugi þegar upp kemst og við höfum misst frá okkur landið. Joseph Stiglitz nóbelsverðlaunahafi var rekinn frá World bank fyrir að vekja athygli á "hinum raunverulega árangri" sem sjóðurinn hefur náð. 

Íslendingar vaknið - Spilling innan IMF

Hér að neðan má finna nokkrar áhugaverðar en jafnframt óþægilegarstaðreyndir um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn sem ríkisstjórn Íslands og Seðlabankinn leitar nú á náðir hjá.Það er almennur misskilningur að IMF (Aljóða gjaldeyrissjóðurinn) ségóðgerðastofnun. Hinar svokölluðu "hjálparaðgerðir" IMF hafa á síðustu árumverið harðlega gagnrýndar um allan heim.

Joseph Stiglitz, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, starfaði sem framkvæmdastjóri IMF (Alþjóðabankans á þetta að vera - world bank) á árunum 1997-2000 en var svo rekinn úr starfi fyrir að tjá sig opinberlega um hinn "raunverulega árangur" IMF. Hann benti á þá staðreynd að flest ríki sem þiggja aðstoð IMF enda í mun verri stöðu en áður. Efnahagskerfin hrynja algjörlega, ríkisstjórnir splundrast ogríkisvaldið minnkar og oftar en ekki endar allt í hörðum átökum ogglundroða. Fyrir það að benda á þessa alkunnu staðreynd var hann rekinn.Það er staðreynd að ríki sem eru í efnahagslegum vandræðum þola sjaldan þauskilyrði sem IMF setur fyrir lánveitingum sínum. Hækkun skatta og harðurniðurskurður í mennta- og heilbrigðiskerfum fer illa með fólk í viðkomandilöndum. Kröfur um opnun markaða eyðilegga alla innlenda framleiðslu oglandbúnað. Strangar kröfur um einkavæðingu veita svo náðarhöggið því helstunauðsynjar og þjónusta hækka upp úr öllu valdi.

Suður Ameríka er gott dæmi um þá hörmungarslóð sem IMF hefur skilið eftirsig. Mörg lönd þar hafa misst öll auðæfi sín í hendur erlendra einkaðila,aðallega bandarískra og breskra stórfyrirtækja sem kúga þegna landana meðgríðarlegum hækkunum á t.d. gasi, olíu og jafnvel drykkjarvatni. Þar á meðaleru lönd eins og Argentína, Bólivía, Brazilía, Chile, Paraguay og ElSalvador. Sömu sögu er að segja í Indónesíu og nokkrum Afríkuríkjum.Eftir slíkar aðfarir er skiljanlegt að almenningur rísi upp með hörðummótmælum og uppþotum gegn ríkisstjórnum landana, sem frá upphafi voru ívonlausri stöðu. Efnahagurinn hrynur aftur og landið þarf að afsala sér ennfrekari réttindum og auðæfum til IMF.

Argentína er eitt ljótasta dæmið um þessa meðferð IMF. Þar varð á endanum efnahagslegt stórslys eftir aðkomu IMF og gjörsamlega allar auðlindir landsins voru seldar erlendum stórfyrirtækjum eins og British Petrolium ogEnron. Jafnvel vatnsveitukerfin voru einkavædd og stór hluti höfuðborgarinnar Buenos Aires er án drykkjarvatns. Ekki nóg með að vatn sénú dýrt, heldur er bara ekki hægt að skrúfa frá krananum.

Árið 2001 voru svo opinberuð mjög óþægileg skjöl fyrir IMF. Ónefndur aðillilak viðkvæmum skjölum í hinn margverðlaunaða blaðamann og rithöfund GregPalast, sem birti þau opinberlega í sjónvarpsviðtali og síðan á heimsíðusinni *www.gregpalast.com* .Þar kom fram að ofan á þær opinberu kröfur sem IMF hafði sett Argentínu ogfleiri ríkjum settu þeir fram óopinberar og leynilegar kröfur sem alþjóðasamfélagið fékk ekki að vita um. Að meðaltali voru þetta yfir hundrað leynikröfur á hvert ríki. Leiðtogum ríkjanna var stillt þannig upp við veggað þeir urðu að láta undan og samþykkja allar kröfurnar. Þar á meðal voru kröfur um það hvaða erlendu risafyrirtæki fengju auðlindir þjóðanna svívirðilega langt undir raunvirði. Skjölin voru undirrituð af JimWolfensen, þáverandi framkvæmdarstjóra IMF. Í fyrstu neitaði bankinn tilvist skjalana en dró það til baka eftir að Greg Palast birti þær á síðunni sinni.Bankinn varð þá að viðurkenna tilvist skjalana en ákvað að tjá sig ekkifrekar um málið opinberlega.IMF er að því er virðist spillt stofnun að einhverju eða jafnvel öllu leyti.Sú hugsun er í raun ekki svo langsótt þegar litið er til þeirrar staðreyndarað IMF er að 51% hlut í eigu United States Treasury.

Allir ofangreindir hlutir eru því miður staðreyndir.Efasemdamönnum er velkomið að gera örlitla upplýsingaöflun á netinu, ekki þarf að leita lengra en *www.wikipedia.com* En hefur Ísland eitthvað að óttast vegna væntanlegs láns frá IMF? Ríkisstjórn Íslands hefur fullyrt það að kröfur IMF séu "ásættanlegar" og að íslenskt efnahagslíf sé sniðið að þörfum og kröfum IMF og þurfi ekkert aðóttast. Það er von allra Íslendinga að svo sé en við skulum nú samt velta nokkrum hlutum fyrir okkur áður en við tökum þau orð góð og gild.

Ef litið er blákalt á stöðuna þá er Ísland komið í svo slæma stöðu að ekkivirðist nein önnur útgönguleið en að leita á náðir IMF. En svo mikið er vístað þegar aðeins ein möguleg leið er sjáanleg úr mikilli krísu þá aðsjálfsögðu virðist sú leið "ásættanleg" hver svo sem hún er.Nú þegar IMF er kominn með hönd sína á íslensku reiðtygin, byrjar íslenskiseðlabankinn að hækka stýrivexi upp í 18% sem mun án nokkurs efa veitamörgum fjölskyldum og fyrirtækjum náðarhöggið á þessum erfiðu tímum.Fjármálaspekingum um allan heim þykir þessi leikur Seðlabankans vægast sagtfurðulegur þegar aðeins eru 10 dagar frá því stýrivextir voru lækkaðir niðurí 12%. Seðlabankastjórnin virðist ekki vita í hvorn fótinn hún á að stíga.Einnig er erfitt að líta fram hjá því að hækkun stýrivaxta hér á landi er algjörlega í andstæðu við þá verulegu lækkun stýrivaxta sem önnur lönd hafa ákveðið að nota gegn heimskreppunni.

En hvað er hægt að gera?Er hægt að gera eitthvað meira en að vona það besta?Auðvitað verðum við Íslendingar að trúa því og treysta að ráðamennþjóðarinnar og Seðlabankinn séu að gera sitt besta á þessu erfiðu tímum. Envið megum ekki gleyma því að þessir sömu aðillar sem nú fara ofan í saumanaá íslenska efnahagshruninu og eru að setja saman björgunaraðgerðir fyrirþjóðina, eru þeir sömu og bera hvað stærsta ábyrgð á allri vitleysunni.Nú verðum að standa upp og krefjast þess að þeir sem eigi hlut að máli axliábyrgð. Krefjumst þess að gamla hugsunarhættinum verði skipt út fyrir nýjarhugsjónir, og fyrst og fremst verðum við að krefjast þess að allar upplýsingar um aðdraganda og eftirmála íslensku kreppunar verði dregnar framí sviðsljósið.Við eigum ekki að sætta okkur við það að þeir aðilar sem eru ábyrgir fyrirhruninu sitji nú við samningaborðið við spillta stofnun fyrir luktum dyrumog neiti að tjá sig um ákvæði samninga.Afhverju taka samningaviðræður við IMF svo langan tíma og afhverju ríkir svomikil leynd yfir þeim? Gæti það mögulega verið vegna þess að ráðþrotaríkisstjórn okkar eigi mjög erfitt með að kyngja þeim leynisamningum ogvaldbeitingu sem IMF beitir nú með miklum þunga?Við verðum að gera ráðamönnum þjóðarinnar ljóst að okkur er ekki sama um þáálitshnekki sem þjóðin hefur orðið fyrir og að aldrei muni það viðgangast aðauðæfi og stolt þjóðarinnar verði hrifsuð burt.

Íslendingar stöndum ekki aðgerðalausir né lítum niður á þá sem mótmæla.Tölum ekki gegn þeim sem hylla raunverulegt lýðræði.Okkur Íslendingum ber skylda að standa saman og láta í okkur heyra.

Mætum næstu laugardaga niður á Austurvöll kl 15:00 og látum rödd fólksinsóma til yfirvalda.

...höfundur ofangreinds texta er óflokksbundinn og stoltur Íslendingur.Arnar Fells Gunnarsson

 


Færeyingar - vinir í raun

Mér var bent á þessa síðu þar sem íslendingar geta komið þökkum á framfæri til Færeyinga fyrir að sýna okkur þann velvilja að lána okkur á þessum erfiðu tímum. Ég vona umfram allt að Ísland þurfi ekki aðstoð Alþjóða-gjaldeyrissjóðsins með hrikalegum afleiðingum sem það getur haft. Ráð þeirra um hækkun stýrivaxta hefur ekki borið tilætlaðan árangur í öðrum löndum sem það hefur verið reynt til að komast útúr kreppu og því finnst manni undarlegt að reyna aftur gamalt ráð sem hefur brugðist annars staðar.

En þökk sé Færeyingum og Pólverjum og öðrum þeim sem ætla að lána okkur fé til að rétta stöðuna hér.

 

Takk_Faroe_Islands_501x101px

 

 

 

 http://faroe.auglysing.is/# 

 


Klár í kreppu? - fjármálanámskeið fyrir ungt fólk

Ég leyfi mér að setja hér inn tilkynningu frá ÍTR um fjármálanámskeið fyrir ungt fólk. Ég hef mikið heyrt talað um það á liðnum árum hve mikilvægt slíkt er og ætti í raun að vera hluti af menntaskólanámi. Eins er mikið talað um að ástandið hjá ungu fólki sé afskaplega slæmt varðandi yfirdrætti og há lán sem það sér ekki fram úr að geta staðið undir. Ég hvet því ungt fólk á aldrinum 16-25 ára til að sækja þetta ókeypis námskeið hjá Hinu Húsinu, glott framtak hjá þeim :)

 

KLÁR Í KREPPU?

Hitt Húsið, Neytendasamtökin og Reykjavíkurborg standa fyrir ókeypis fjármálafræðslu fyrir ungt fólk, 16-25 ára,í Hinu Húsinu Pósthússtræti.


Námskeiðið er ókeypis!
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að vera færir um að stjórna eigin fjármálum á ábyrgan hátt.
Allir þátttakendur fá í hendur USB lykil sem hefur að geyma persónulegt bókhaldsforrit og fjármálafræðslu á mannamáli.



Námskeiðið er fyrir þá sem :
• Vilja öðlast skilning og stjórn á eigin fjármálum.
• Vilja vera vel upplýstir og meðvitaðir neytendur.
• Vilja losna við yfirdrátt og neyslulán.
• Vilja öðlast skilning á öllum helstu hugtökum fjármálaheimsins.
• Vilja læra að gera fjárhagsáætlun og að reikna út launin sín.
• Vilja eignast USB lykil sem hefur að geyma persónulegt
bókhaldsforrit og almenna fjármálafræðslu á mannamáli.


Vikulegir fundir í einn mánuð:
Þriðjudaginn 11.nóvember kl. 17-19
Þriðjudaginn 18. nóvember kl. 17-19
Þriðjudaginn 25. nóvember kl. 17-19
Þriðjudaginn 2. desember kl. 17-19

Ekki missa af þessu einstaka tækifæri !


Skráðu þig á slóðinni: www.hitthusid.is eða í síma: 695-5103
Skráðu þig sem fyrst þar sem aðgangsfjöldi er takmarkaður






Baráttukveðjur

Jón Heiðar Gunnarsson
Verkefnastjóri í Ráðgjafadeild
Framkvæmdarstjóri Jafningjafræðslu
Hitt Húsið
Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík
Sími: 695-5103, 411 5522


Höfundur

Andrea J. Ólafsdóttir
Andrea J. Ólafsdóttir

Klikkaðu á mig andreaolafs@gmail.com

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Mitt HTML

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband