Leita í fréttum mbl.is

Skoðanasystir Dalai Lama, Gandhi og Mandela

Jæja, prófkjörið búið og mig langaði að setja inn til gamans hérna smá test sem ég hvet ykkur til að taka. Mér fannst ekkert ónýtt að fá mínar eigin niðurstöður í þessu og sjá að ég er mjög nálægt Gandhi, Mandela og Dalai Lama í skoðunum og eins langt frá George W. Bush og ég gæti mögulega komist  Smile 

Það gerir mig virkilega glaða og veitir mér örugga vitneskju um það að ég mun á einn eða annan hátt hafa áhrif á samfélag mitt í nánustu framtíð.

Með því að taka prófið og pæla í skiptingu pólitískra skoðana þá sjáið þið að það er alls ekki hægt að flokka þær eins einfaldlega eins og oft er gert með því að skipta þeim einungis í vinstri og hægri. Heimurinn er mun flóknari en það. Innan bæði vinstri og hægri eru fasistar og einnig eru á báðum hliðum frjálslyndir. Frjálslyndir vinstri eru semsagt ég, Gandhi, Dalai Lama og Mandela - ég er þó mun lengra í átt að frjálslyndi en þeir þrír.

Takið prófið hér


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessuð vinkona. Ég tók prófið, reyndar voru sum ensk fræðiorð að þvælast fyrir mér en ég fékk rauðan punkt niðri vinstra megin s.s. hjá Gandhi og co.  Ég hlýt að vera svona "líbó" að mörgu leyti, á móti einræði og aga.........

Kveðja og góðan sunnudag.

Inga

Inga Björk (IP-tala skráð) 10.12.2006 kl. 11:29

2 Smámynd: Andrea J. Ólafsdóttir

Well, þú ert semsagt í mínu liði ... gott að vita það

Andrea J. Ólafsdóttir, 11.12.2006 kl. 23:33

3 identicon

Við erum nánast á sama stað, nema að ég er eins og örlítið vinstri sinnaðri ;)

ErlaHlyns erlahlyns.blogspot.com

Erla (IP-tala skráð) 14.12.2006 kl. 12:47

4 identicon

Ég hélt að ég væri mjög harður hægrimaður en svo fæ ég punktinn -4,13 og -1,28  Veit eiginlega ekki hvað ég á að halda. Miðað við þetta er ég vinstrisinnaður???  eða hvað?

rth (IP-tala skráð) 22.12.2006 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrea J. Ólafsdóttir
Andrea J. Ólafsdóttir

Klikkaðu á mig andreaolafs@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Mitt HTML

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband