Leita í fréttum mbl.is

Minnihluti Íslendinga kaus D&B

Ef Geir H. Haarde er í raun ábyrgur maður og ábyrgur stjórnandi mun hann ekki halda áfram að starfa með Framsókn, svo mikið er víst. Ef hann er jafnframt svo ábyrgur að hann hlusti á tilkall þjóðarinnar til náttúruverndar mun hann heldur ekki halda áfram að starfa með Framsókn.   

Það sem mér finnst í raun hræðilegast er það að "meirihluti" XD og XB hélt velli, þrátt fyrir að vera aumur. Í báðum tilfellum ráða núna  þessir tveir flokkar bæði í borg og landi þrátt fyrir það að þeir hafa eingöngu um 48-49% fylgi. Finnst engum nema mér það réttmæt krafa í lýðræðislegu ríki að eingöngu megi mynda ríkisstjórn flokka sem hafa meirihluta fylgi í prósentum talið? Reyndar er kannski ekki ráðið ennþá hvort XD&XB verða áfram í hinni spilltu hjónasæng í stjórnarráðinu ... vonandi kemur annar flokkur í stað XB.

En ef þessi hrikalega stjórn ætlar sér að starfa áfram og XB jafnvel að taka upp á því sem Jón sagði með að setja fólk í ráðherrastóla og varamenn á þing í staðinn og tvöfalda þannig styrk sinn í stað þess að horfast í augu við að flokkurinn á bara að draga sig til hlés.

Ég spái því (án þess að hafa nokkra hugmynd um stjórnarmyndunarviðræður) að innan fárra daga verði mynduð ríkisstjórn D+V


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það að mynda stjórn með Framsókn væri nátturulega snilld hjá Geir því þá myndi framsóknarflokkurinn þurrkast út og ég hef lúmskan grun um það að 88,3% þjóðarinnar vilji Framsókn burt

Reynir (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 12:46

2 identicon

Held að Kristinn Haukur ætti aðeins að passa kjaftinn á sér ... sé ekki klofið opnast á neinum jafnmikið eins og á Framsókn. Þú vilt kannski ekki horfa (enda ógeðfelld sýn), en þegar formaðurinn segir á kosninganótt að Framsókn ætti að stíga til hliðar en mellast svo áfram mögulega með XD í ríkisstjórn ... þá er verið að hunsa kjósendur. Hræsnarana finnur þú Kristinn í Framsókn!

Var ekki verið að tala um það að fleiri styðja stjórn D og S heldur en D og B? ... en ég tek undir með Andreu... það væri áhugaverð stjórn ef D og V næðu saman.

Staðreyndirnar eru skýrar: fleiri kusu stjórnarandstöðuflokkana en stjórnarflokkana! - ef þú tekur atkvæði til Íslandshreyfingarinnar með, þá er munurinn stærri ... stjórnarflokkarnir hafa ekki meirihluta fólksins í landinu á bak við sig heldur minnihluta! -- Staðreyndin er sú að aðstoðarmaður umhverfisráðherra segir að áframhaldandi vera Framsóknar í ríkisstjórn sé feigðarflan ...

Kjaftasögurnar hafa verið margar, en einhver óánægja ku vera meðal sumra Framsóknarmanna, en þeim gert að láta stjórnarsamstarfið yfir sig ganga.

Með þetta allt í huga geturðu ekki gert ráð fyrir að D og B verði farsælt samstarf áfram... 

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 16:24

3 Smámynd: Ragnar L Benediktsson

Sigurvegari kosninganna er tvímælalaust Árni Johnsen með 20% útstrikana, og fær hann því fyrstu verðlaun næstur honum er Björn Bjarnason með rétt rúmlega 18% hlítur silfrið, Jónína Bjartmarz er svo hinn eiginlegi “lúser “ ekki nema 50 útstrikanir hí á hana skammarverðlaunin eru hennar. Kolla með 182 útstrikanir hlítur bronsið, Solla, Ásta og Mörður eru miðju fólk sem engin verðlaun fá.

Ragnar L Benediktsson, 16.5.2007 kl. 19:45

4 Smámynd: Presturinn

 

Geir veit hvað hann syngur (og hann syngur vel). Það að hann ræði við Framsókn segir okkur tvennt. Í fyrsta lagi að það sé hægt að mynda stjórn með Framsókn og í öðru lagi að það sé ekki hægt að mynda stjórn með VG eða S.

Haldið þið í alvöru að Geir vilji ekki sterka stjórn með öflugan meirihluta?

Auðvitað vill Geir mynda sterkan meirihluta. En meirihlutinn þarf ekki bara að vera sterkur í þingmönnum talið. Innan meirihlutans þurfa að vera sterkir samstarfshæfir einstaklingar sem ganga í takt. Samstarf virkar ekki þegar hver og einn dansar eftir sínu lagi. Vilji Geir til að ræða við Framsókn segir meira um VG og Samfylkinguna en það gerir um gengi Framsóknar í kosningunum.

Geir vill góða og sterka stjórn. Hann metur það greinilega þannig að það sé meri styrkur í einum Framsóknarmanni en 18 krötum eða 9 kommar. Hann hefur vissulega eitthvað til síns máls þar.

Presturinn, 17.5.2007 kl. 09:32

5 Smámynd: Hafrún Kristjánsdóttir

Ákall þjóðarinnar til nátturuvendar??  Bíddu það kusu 17% VG og I til samans.  Undirskirftalisti framtíðarlandsins var flopp.  Bíddu um hvaða ákall ertu að tala?

Hafrún Kristjánsdóttir, 17.5.2007 kl. 20:29

6 Smámynd: Andrea J. Ólafsdóttir

Jæja, viðræður hafnar hjá Geir og ISG.

Hafrún mín, ef með er talin SF þá er prósentan sem er á móti stóriðju mun stærri.

Nær 75% kjósenda svöruðu því til að þeir vildu að flokkarnir legðu meiri áherslu á náttúruvernd og umhverfismál

Samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands vilja 72,8% aðspurðra að stjórnmálaflokkarnir leggi meiri áherslu á náttúruvernd og umhverfismál. 22.6% telja að flokkarnir leggi hæfilega áherslu á þennan málaflokk og 4,6% svöruðu því til að flokkarnir ættu að leggja minni áherslu á málaflokkinn.

Rúm 37,2% telja að leggja beri miklu meiri áherslu á umhverfisvernd og 35,6% nokkuð meiri.

Sjá könnun Capacent Gallup pdf-skjali

Hér má síðan sjá frétt um að 58% vilja stjóriðjustopp á mbl 

Andrea J. Ólafsdóttir, 18.5.2007 kl. 22:16

7 identicon

"Hér má síðan sjá frétt um að 58% vilja stjóriðjustopp á mbl "

Stóriðjustopp og það að hlé verði gert á frekari stóriðju næstu 5 árin er ekki það sama.

Hlynur Davíð Stefánsson (IP-tala skráð) 19.5.2007 kl. 00:36

8 Smámynd: Björn Viðarsson

Andrea, þessi 72,8% hafa þá ekki sterkari sannfæringu en þetta miðað við hvað kom upp úr kössunum. Enda ætti Gallup frekar að spyrja "Muntu grundvalla atkvæði þitt á umhverfismálum?".

Allir vilja náttúruvernd, bara lifibrauð líka. 

Björn Viðarsson, 19.5.2007 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Andrea J. Ólafsdóttir
Andrea J. Ólafsdóttir

Klikkaðu á mig andreaolafs@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Mitt HTML

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband